SKILMÁLAR OG SKILYRÐI FYRIR KYNNINGU Á SUPER MARIO


 

1.     Þessi leikur er opinn einstaklingum sem búsettir eru á Íslandi og sem hafa náð 18 ára aldri, að undanskildum starfsmönnum leikshaldara, umboðsaðilum, dreifingaraðilum eða hlutdeildarfélögum leikshaldara eða nánustu fjölskyldumeðlimum (samkvæmt skilgreiningu foreldrar, börn, systkini, makar og aðrir sem deila heimili með viðkomandi) og hverjum sem tengjast þessari kynningu faglega.

 

2.     Vörukaup eru nauðsynleg til þátttöku í leiknum. Vinsamlegast geymdu sundurliðaða kvittun sem sýnir tíma og dagsetningu kaupa áður en þú skráir þátttöku á leiktímabilsinu, þar sem mögulega þarf að sýna kvittunina til staðfestingar áður en verðlaunin eru afhent. Nauðsynlegt er að hafa netaðgang, snjallsíma með myndavél, reikning hjá Kellogg's og gilt netfang.

 

3.     Vinsamlegast athugaðu að þótt við viljum hvetja þig til að taka þátt og njóta ávinnings af kynningunni viljum við stuðla að ábyrgri neyslu á vörum okkar. EKKI kaupa meira af vörum en þú getur eðlilega notað eða neytt, bara til að taka þátt í þessari kynningu.

4.     Aðalkynningartímabil: Skráðu þig til þátttöku milli kl 00:01 GMT þann 7. janúar 2025 og 23:59 BST þann 5. maí 2025, að báðum dögum meðtöldum.

 

5.     Útdráttur þar sem allir eru með: Eftir aðalleiktímabilið verða skráningar gerðar á milli kl. 00:01 BST þann 6. maí 2025 og 23:59 BST þann 15. júlí 2025 meðtalið, verður með í útdrætti þar sem allir eru með.

 

6.     Þátttaka í leiknum: Þátttakendur verða að:

a.     Kaupa Pringles dós;

b.     Opna pringles.com í snjallsíma og finna Super Mario leikinn;

c.     Skrá sig inn með Kellogg's reikningi eða stofna nýjan reikning;

d.     Smelltu á „Taka Þátt“;

e.     Vinningshafar eru látnir vita samstundis á skjánum.

 

7.     Frekari skilyrði fyrir þátttöku:

a.     Það er mögulegt að snjallsímar með eldri stýrikerfi en iOS 14 eða Android 9, og iPhone símar sem eru iPhone 8 eða eldri geti ekki hlaðið gögnum nógu hratt og þannig haft áhrif á keppnistíma þátttakanda.

b.     Aðeins er hægt að ræsa leikinn með Safari útgáfu 17.1 eða nýrri farsíma, Samsung Internet útgáfu 23 eða nýrri, eða Google Chrome útgáfu 119 eða nýrri. Öll forrit verða að vera virkjuð með JavaScript til að ræsa leikinn.

 

8.     Hverri skráningu verður að fylgja ný kvittun fyrir kaupum sem gerð voru á leiktímabilinu fyrir þann tíma sem þátttakandi skráir sig til leiks.

9.     Að hámarki er leyfð ein (1) leikskráning á mann á dag á hverju leiktímabili og að hámarki eru leyfð ein (1) verðlaun fyrir hvert póstfang á báðum leikjatímabilunum.

 

10.  Vinningshafar verða að geyma sundurliðuðu kvittunina þar sem fram kemur tími og dagsetning kaupanna á leiktímabilinu fyrir þann tíma sem þátttakandi skráir sig til leiks. Mögulegt er að sýna þurfi kvittunina hvenær sem er til staðfestingar og til þess að vinningshafinn fái vinninginn afhentan. Ef þátttakandi getur ekki lagt fram sönnun fyrir kaupum fyrir allar skráningar, sé þess óskað, getur sá þátttakandi ekki lengur tekið þátt í leiknum og allar síðari skráningar verða ógildar.

 

11.  Vinningar á aðalleiktímabili: Á aðalleiktímabilinu er hægt að vinna alls 4 verðlaun. Vinningum verður úthlutað af handahófi. Hver verðlaun samanstanda af Nintendo Switch og Super Mario Bros Wonder leik að verðmæti 380 evrur.

 

12.  Vinningar í útdrætti þar sem allir eru með: Ein (1) verðlaun eru í boði í útdrætti þar sem allir þátttakendur eru í pottinum. Verðlaunin eru Nintendo Switch og Super Mario Bros Wonder leikur að verðmæti 380 evrur.

 

13.  Frekari upplýsingar og skilyrði verðlauna:

a.     7” skjár.

b.     Breiður stillanlegur standur.

c.     Innbyggðir hátalarar með bættu hljóði.

d.     64 GB innra geymslupláss.

e.     Ekki er krafist Nintendo aðgangs til að nota verðlaunin en hann er nauðsynlegur til að fá aðgang að sumum eiginleikum Nintendo Switch.

f.      Verðlaunin verða afhent með 24 mánaða ábyrgð framleiðanda, nánari upplýsingar er að finna hér: www.nintendo.com/en-gb/Support/Nintendo-Switch/Warranty/Warranty-1197434.html.

g.     Það er á ábyrgð þátttakanda að gefa upp réttar, uppfærðar upplýsingar þegar hann skráir sig í kynninguna og/eða staðfestir viðtöku vinningsins til að hægt sé að afhenda vinninginn. Leikshaldari getur ekki borið ábyrgð á því að vinningshafar hafi ekki gefið upp réttar upplýsingar sem hafa áhrif á viðtöku verðlauna eða afhendingu vinnings.

h.     Leikshaldari ber ekki ábyrgð á neinum verðlaunum þegar þau hafa verið send til eða afhent vinningshafa og leikshaldari ber ekki ábyrgð á neinum vinningum sem ekki hafa borist eða hafa skemmst eða týnst í flutningi.

i.       Með því að taka þátt í leiknum samþykkja þátttakendur að verðlaunin séu veitt „eins og þau eru“ og að leikshaldari beri ekki ábyrgð af neinu tagi með tilliti til verðlaunanna.

 

14.  Val vinningshafa

a.     Aðalleiktímabil: Á aðalleiktímabilinu hafa fjórar (4) „vinningsstundir“ verið valdar af handahófi af þriðja aðila. Fyrsta skráningin á eða eftir vinningsstundina hlýtur verðlaunin. Ef engin skráning berst á milli einnar vinningsstundar til næstu verða verðlaunin frá þeirri vinningsstund veitt næstu skráningu sem gerð er á aðalleiktímabilinu. Hægt er að vinna öll fjögur (4) verðlaunin.

b.     Útdráttur þar sem allir eru með: Einn (1) vinningshafi verður valinn af handahófi úr öllum gildum skráningum sem berast á meðan dregið er úr öllum skráningum. Athugið að fyrirvarar gilda. Verðlaunaútdráttur skal fara fram innan 5 virkra daga frá lokum útdráttar þar sem allir eru með.

c.     Lokaútdráttur Eftir að framlengda leiktímabilinu lýkur, ef vinningur hefur ekki gengið út, honum hafnað, ekki afhentur, ekki verið sóttur eða honum skilað til sendanda á öðru hvoru leiktímabilinu, eða ef vinningshafi er dæmdur úr leik vegna brots á skilmálum þessum, áskilur leikshaldari sér rétt til að óska eftir því að óháður aðili dragi úr öllum gildum skráningum sem ekki hafa hlotið vinning. Fjöldi verðlauna sem undir þetta falla er ókunnur enda ákvarðast hann af þeim fjölda verðlauna sem gefin eru yfir allt keppnistímabilið. Vinningshafar með þessari leið munu fá tilkynningu í tölvupósti innan 28 virkra daga frá því að dregið er úr öllum skráningum.

 

15.  Tilkynning til vinningshafa:

a.     Aðalleikur: Vinningshafar („vinningshafar með fyrirvara“) fá tilkynningu samstundis á skjánum um að þeir hafi unnið og fá sendan staðfestingarpóst á netfangið sem skráð er á Kellogg's reikninginn þeirra. Einnig gæti verið haft samband við vinningshafa með fyrirvara með tölvupósti á netfangið sem skráð er á Pringles reikninginn innan 28 daga frá tilkynningu um vinningshafa og þeir beðnir um að leggja fram sönnunargögn um auðkenni og gjaldgengi í leikinn. Ef vinningshafi með fyrirvara svarar ekki fyrstu skilaboðum innan 14 daga frá móttöku þeirra, eða fellur úr keppni vegna brota á skilmálum þessum, áskilur leikshaldari sér rétt til að skila vinningnum í verðlaunapott leiksins ef þetta á sér stað á meðan aðalleikur stendur yfir eða bæta honum við lokaútdráttinn.

b.     Framlengdur leikur: Vinningshafi með fyrirvara verður látinn vita með tölvupósti á netfangið sem er skráð á Kellogg's reikningi hans innan 28 daga frá því að dregið var úr öllum skráningum. og gæti verið beðinn um að leggja fram sönnunargögn um auðkenni og gjaldgengi. Ef vinningshafi með fyrirvara svarar ekki fyrstu skilaboðum innan 14 daga frá móttöku þeirra eða fellur úr keppni vegna brota á þessum skilmálum áskilur leikshaldari sér rétt til að skrá vinninginn í lokaútdrátt.

 

16.  Verðlaunamóttaka og -afhending: Þegar vinningshafi með fyrirvara hefur lagt fram sönnunargögn um auðkenni sitt og gjaldgengi, ef þess er óskað, ætti hann að leita að tölvupósti sem staðfestir að hann sé vinningshafi ásamt frekari upplýsingum um vinninginn. Vinsamlegast athugið að það geta liðið allt að 10 dagar þar til vinningshafi fær staðfestingu á netfangið sem gefið var upp í tengslum við Kellogg‘s reikninginn.

 

17.  Ef svo ólíklega vill til að tölvupóstur með frekari upplýsingum um vinninginn berist ekki innan 10 daga frá tilkynningu um vinningshafa hafa vinningshafar 28 daga til viðbótar til að láta leikshaldara vita með því að fylla út samskiptaform á Pringles.com. Geri vinningshafi það ekki áskilur leikshaldari sér rétt til að endurúthluta ekki verðlaunum eða takmarka verðmæti þeirra að eigin geðþótta.

 

18.  Það er á ábyrgð vinningshafa að gefa upp réttar persónuupplýsingar á Kellogg’s reikningi sínum til þess að geta tekið við verðlaunum. Leikshaldari ber enga ábyrgð á því ef ekki er hægt að afhenda vinninginn vegna rangrar upplýsingagjafar. Ekki er hægt að uppfæra netfang eða póstfang vinningshafa eftir skráningu.

19.  Vinningshafar þurfa ekki að stofna til neins kostnaðar við að krefjast verðlauna eða samsvarandi ávinnings. Neytandi kann að stofna til kostnaðar við að taka þátt í leiknum. Vinningshafar munu ekki bera neinn kostnað vegna ráðstafana leikshaldara til að vinningshafi fái vinninginn í hendur. 

 

20.  Leikshaldari getur farið fram á að vinningshafar taki þátt í sanngjörnu kynningarstarfi vegna leiksins, þar með talið notkun á nafni vinningshafa, rödd, borg/heimilissvæði, myndir, myndskeið eða kvikmyndainnskot og/eða annað myndlíki í auglýsinga- og/eða viðskiptalegum tilgangi og/eða í öðrum tilgangi á hvaða miðli eða sniði sem er nú eða hér eftir, án frekari bóta (fjárhagslegra eða annarra). Þátttaka er á valdi vinningshafa og er ekki skilyrði fyrir móttöku vinninga.

21.  Leikshaldari leitast við að framkvæma kynningarherferðir sínar með sanngjörnum og tryggum hætti og koma í veg fyrir misnotkun og svik. Ef þú skráir þátttöku í ósamræmi við þessa skilmála verður þátttaka þín (og öll dulnefni sem tengjast þér) skráð úr leiknum, vinningar fyrnast og leikshaldari áskilur sér rétt til að banna þér þátttöku í framtíðarleikjum í að minnsta kosti sex mánuði. Vegna þessa áskilur leikshaldari sér rétt til hvenær sem er að:

 

a.     Sannprófa gjaldgengi þátttakenda og/eða vinningshafa með fyrirvara með því að óska eftir þeim upplýsingum sem við teljum nauðsynlegar í þessum tilgangi. Þátttakanda getur verið synjað um þátttöku eða vinning þar til sannprófun er lokið með fullnægjandi hætti.

 

b.     Fella úr keppni skráningar sem ekki eru gerðar af þeim einstaklingi sem er skráður þátttakandi í leiknum.

 

c.     Fella úr keppni skráningar sem gerðar voru með ónafngreindri tölvupóstþjónustu, til dæmis, en þó ekki takmarkað við, GuerillaMail, Dispostable eða Mailinator.

 

d.     Fella úr keppni magnskráningar þátttöku frá einstaklingum, fyrirtækjum, neytendahópum eða þriðju aðilum, skráningar sem ekki eru fullkláraðar og skráningar skráðar með notkun fjölvaskipana (e. „macros“) eða annarri sjálfvirkni.

 

e.     Taka úr keppni skráningar sem eru yfir leyfðu hámarki eða skráningar með notkun tækni á borð við „skriftumál“, „jarðýtuárás með dulmálslyklum“, notkun fleiri SIM korta fyrir skráningar, dulkóðun auðkennis með því að hagræða IP-adressum, notkun dulnefna eða auðkenna annarra einstaklinga, eða hvers konar annarrar tækni.

f.      Fella úr keppni skráningar sem á einhvern annan hátt uppfylla ekki kröfur þessara skilmála.

 

22.  Þátttakendum er skylt að gefa upp persónuupplýsingar með eigin nafni. Leikshaldari áskilur sér rétt til að dæma þátttakendur úr leik sem nota mörg nöfn, netföng eða póstföng og krefjast þess að þeir skili verðlaunum sem þeir kunna að hafa unnið.

 

23.  Verðlaunin og gjafir eru ekki framseljanleg eða útskiptanleg og ekki er hægt að innleysa þau fyrir peningaverðmæti eða fyrir neina aðra endurgreiðslu. Ef ekki er hægt að útvega tilkynnt verðlaun af einhverjum ástæðum, áskilur leikshaldari sér rétt til, eftir eigin ákvörðun, að veita önnur verðlaun að jöfnu verðmæti eða meira í staðinn.

 

24.  Vinningshafi ber ábyrgð á að greiða alla viðkomandi skatta sem þarf til að fá vinninginn afhentan.

 

25.  Ef ekki er hægt að framkvæma leikinn samkvæmt áætlun vegna ástæðna sem tengjast, en takmarkast ekki við, óheimilaðri breytingu, óheimilaðri íhlutun, svikum, óheiðarleika, tæknilegum bilunum, eða öðrum ástæðum sem leikshaldari getur ekki haft áhrif á, sem spilla eða hafa áhrif á stjórnun, öryggi, sanngirni, réttmæti eða tilhlýðilega framgöngu þessa leiks, áskilur leikshaldari sér rétt til að víkja úr keppni þeim þátttakendum sem breyta með óheimilum hætti skráningu eða fylgja ekki þessum skilmálum eða gera skráningar sem í hlut eiga ógildar og/eða afturkalla, breyta eða fresta leiknum.

 

26.  Engin ábyrgð er tekin á skráningum sem glatast, seinkar, spillast, skemmast, er vísað rangt eða eru ófullnægjandi, eða sem ekki bárust vegna tæknilegra eða flutningstengdra ástæðna eða annarra ástæðna. Sönnun sendingar gildir ekki sem sönnun móttöku. Leikshaldari ábyrgist ekki áframhaldandi eða tryggt aðgengi að leikjasíðunni.

 

27.  Leikshaldari, verðlaunaafgreiðsluaðili og tengdir aðilar hans bera ekki ábyrgð á neinu tjóni (þar með talið, án takmarkana, óbeinu, sérstöku eða afleiddu tapi eða tapi á hagnaði), kostnaði eða tjóni sem verður fyrir eða verður fyrir (hvort sem það verður eða ekki) vegna vanrækslu einhvers) í tengslum við þennan leik eða við að taka við eða nota verðlaun, að undanskilinni þeirri ábyrgð sem ekki er hægt að útiloka samkvæmt lögum. Ekkert útilokar ábyrgð leikshaldara vegna dauða eða líkamstjóns sem hlýst af vanrækslu hans.

 

28.  Leikshaldari ber ekki ábyrgð á neinum seinkunum eða vanefndum á skyldum vegna óviðráðanlegra ástæðna sem tengjast, en takmarkast ekki við, óviðráðanlegar aðstæður (e. Acts of God), hnattrænum eða svæðisbundnum farsóttum eða heimsfaraldri, ofsaveðri, bruna, kjaradeilum, stríði, hryðjuverkum, átökum, pólitískum óróa, óeirðum, borgaralegum uppþotum, drepsóttum, eða öðrum náttúrulegum hamförum eða öðrum aðstæðum leikshaldara.

 

29.  Við leggjum okkur fram við að vernda friðhelgi þína. Kellogg Europe Trading Limited (Kellogg) mun aðeins vinna úr upplýsingum þínum í eftirfarandi tilgangi: (1) Til að standa að þessum leik samkvæmt skilmálum, og (2) til að hafa samband við þig í tengslum við framtíðarleiki og vegna markaðssetningar. Við munum aldrei selja gögn um þig til þriðja aðila en það getur verið að við sameinum gögn þín við gögn annars staðar frá til að byggja upp nafnlausar forstillingar fyrir markmiðaðar auglýsingar. Unnið verður úr gögnum þínum og þau geymd á netþjónum í Bandaríkjunum. Kellogg hefur gengið úr skugga um að allir vinnsluaðilar sem við notum séu skuldbundnir til að vernda gögn samkvæmt stöðluðum ákvæðum Evrópusambandsins. Við munum geyma gögnin þín eins lengi og samþykki þitt er gilt og þú vilt fá sent markaðsefni. Þú hefur rétt á að nálgast þín gögn, afturkalla samþykki þitt eða að láta eyða gögnunum. Þú hefur einnig rétt á því að hafa samband við eftirlitsaðila gagnaverndar. Ef þú hefur frekari spurningar um hvernig við notum gögnin, skaltu skoða Persónuverndarstefnu okkar. Þú getur einnig haft samband við okkur á DataPrivacyOfficer@kellogg.com. Farið verður með allar upplýsingar sem er safnað um þátttakendur í þessum leik sem trúnaðarmál í samræmi við persónuverndarstefnu leikshaldara sem er að finna á: www.pringles.com/is/privacy-policy.html.

 

30.  Ef einhverjar breytingar eru gerðar mun leikshaldari láta þátttakendur vita í gegnum þessa síðu.

 

31.  Leikshaldari og aðilar honum tengdir bera enga ábyrgð ef þessum leik er breytt, honum frestað eða hætt af einhverjum ástæðum eða vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Engar bætur verða greiddar af hálfu leikshaldara eða aðila honum tengdum.

 

32.  Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi kynninguna skaltu hafa samband við þjónustuver: www.pringles.com/is/contact-us.html.

 

33.  Ef þess er krafist samkvæmt lögum eða eigin eftirliti sem gilda um rekstur leiksins gæti leikshaldari þurft að deila einhverjum persónuupplýsingum sigurvegara með yfirvöldum, aðeins að því marki sem lög kveða á um. Þessar upplýsingar geta falið í sér nafn vinningshafa, eftirnafn, búsetusvæði eða aðrar persónuupplýsingar sem leikshaldara er skylt að deila.

 

34.  Ef einhver hluti þessara skilmála og skilyrða er með lögum talinn ógildur, ólöglegur, eða honum ekki unnt að framfylgja, mun það ekki hafa áhrif á aðra hluta skilmálanna og eru þeir áfram í gildi.

 

35.  Með þátttöku teljast þátttakendur hafa samþykkt að vera bundnir skilmálum þessum.

 

36.  Ef ósamræmi kemur upp á milli þessara skilmála og skilmála í einhverju öðru efni kynningarherferðar munu þessir skilmálar gilda.

 

37.  Skilmálar þessir skulu fara eftir íslenskum lögum og fer túlkun og beiting þeirra undir lögsögu dómstóla Íslands.

 

 

1.     My Nintendo Platinum stigagjöfin mín: Milli 00:01 þann 7. janúar 2025 og kl. 23:59 þann 15. júlí 2025, geta neytendur fengið 100 ókeypis Nintendo Platinum stig („gjöf“), að andvirði um það bil 3,99 evra til notkunar á Nintendo reikningnum sínum.

 

2.     Hvernig á að sækja og safna Nintendo Platinum stigum:

a.     Nota þarf snjallsíma til að opna pringles.com og fletta að Super Mario kynningu;

b.     Skrá sig inn með Kellogg's reikningi eða stofna nýjan reikning;

c.     Smelltu „Smelltu Til Að Skora Stig“;

d.     Notendur munu síðan fá sérstakan kóða sem hægt er að innleysa á Nintendo reikningnum sínum;

e.     Notaðu hnappinn „Innleysa kóða á My Nintendo“ til að fara á innlausnarsíðuna á My Nintendo vefsíðunni eða fara á https://www.nintendo.com/en-gb/Campaigns/Super-Mario-Pringles-redeem-your-Platinum-Points-2695402.html;

f.      Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að skrá þig inn á Nintendo reikning eða búa til nýjan aðgang þér að kostnaðarlausu og safnaðu síðan platínustigunum.

3.     Frekari upplýsingar um gjöfina og skilyrði:

a.     Nauðsynlegt er að hafa Nintendo reikning með stillingu fyrir land/svæði í Evrópu til að fá platínustig.

b.     Aðeins einn (1) einstakur kóði er leyfður á hvern einstakling og hægt er að nota hann fyrir einn Nintendo reikning.

c.     AÐEINS er hægt að nota alla kóða einu sinni.

d.     Kóðar verða aðeins sýnilegir á Kellogg's reikningi þátttakanda til 15. júlí 2025.

e.     Þegar búið er að færa stigin inn á My Nintendo reikninginn gilda platínustig aðeins í 6 mánuði eftir það. Öll platínustig sem ekki eru notuð eftir það hverfa af My Nintendo reikningi notanda.

f.      Hægt er að innleysa kóða á https://www.nintendo.com/en-gb/Campaigns/Super-Mario-Pringles-redeem-your-Platinum-Points-2695402.html eða https://my.nintendo.com/serial_number frá 7. janúar 2025 til 30. september 2025.

g.     Skilmálar Nintendo reikningssamningsins og My Nintendo Rewards forritsins gilda. Til að skoða skilmála My Nintendo Rewards forritsins skaltu fara á: https://accounts.nintendo.com/term_point. Til að skoða samninginn fyrir My Nintendo reikninginn minn skaltu fara á: https://accounts.nintendo.com/term/eula/IS.

 

Leikshaldari: Kellogg Europe Trading Limited, 3 Dublin Airport Central (DAC), Dublin Airport, Dublin (kennitala fyrirtækis 0387390). EKKI SENDA SKRÁNINGAR ÞÁTTTÖKU Á ÞETTA HEIMILISFANG.

x