1. Þessi kynning er í boði fyrir íbúa 18 ára og eldri í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, að undanskildum starfsmönnum kynningaraðila, fulltrúum, dreifingaraðilum eða tengdum fyrirtækjum dreifingaraðila eða nánum fjölskyldumeðlimum (skilgreint sem foreldrar, börn, systkini, makar eða lífsförunautar og sambýlisfólk) og hver sá sem er fagtengdur þessari kynningu.
2. Kaup eru nauðsynleg. Vinsamlegast geymdu sundurliðaða kvittun þar sem fram kemur tími og dagsetning kaupanna fyrir skráningu, en innan viðkomandi kynningartímabils, þar sem þess gæti þurft til staðfestingar og til að vinningshafi fái vinninginn sinn. Netaðgangur, snjallsími með myndavél, Poptopia aðgangur og gilt netfang eru áskilin.
3. Gættu að því að samtímis því að við viljum hvetja þig til að taka þátt og njóta ávinnings af kynningunni hvetjum við til ábyrgrar neyslu á vörum okkar. EKKI kaupa meira af vörum en þú getur venjulega notað eða neytt, bara til að taka þátt í þessari kynningu.
4. Aðal kynningartímabil: Þátttaka er frá 00:01 CEST (01:01 EEST) þann 1. október 2024 til 23:59 CET þann 7. janúar (00:59 EET þann 8. janúar) 2025, báðir dagar meðtaldir.
5. Framlengt kynningartímabil: Eftir aðalkynningartímabilið verða skráningar sem gerðar eru á milli kl. 00:01 CET (01:01 EET) þann 8. janúar 2025 og 23:59 CET þann 4. febrúar (00:59 EET þann 5. febrúar) 2025, báðir dagar meðtaldir, færðar inn í framlengt kynningartímabil.
6. Til að taka þátt í kynningunni: Þátttakendur verða að:
a. Kaupa Pringles dós;
b. Notaðu snjallsíma og farðu á pringles.com/BNI (eða Pringles.com og veldu upplifunina Big Night In);
c. Skráðu þig síðan inn eða búðu til Poptopia aðgang;
d. Smelltu á „Spila núna“; og
e. Ljúktu áskoruninni á sem stystum tíma.
7. Frekari skilyrði fyrir þátttöku:
a. Mögulegt er að snjallsímar með eldri stýrikerfi en iOS 14 eða Android 9 og iPhone símar sem eru eldri en iPhone 8 geti ekki hlaðið gögnum nógu hratt og þannig haft áhrif á lokatíma þátttakanda.
b. Aðeins er hægt að ræsa áskorunina með Safari útgáfu 17.1 eða nýrri farsíma, Samsung Internet útgáfu 23 eða nýrri, eða Google Chrome útgáfu 119 eða nýrri. Öll forrit verða að vera virkjuð með JavaScript til að ræsa áskorunina.
8. Hverri þáttöku verður að fylgja ný kvittun fyrir kaupum sem voru gerð á kynningartímabilinu og fyrir tíma og dagsetningu þátttöku.
9. Einungis ein skráning er leyfð á hvert póstfang, á dag á hverju kynningartímabili og að hámarki eru leyfð ein verðlaun á hvert póstfang á öllum kynningartímabilunum.
10. Vinningshafar verða að geyma sundurliðaða kvittun þar sem fram kemur tími og dagsetning kaupanna á kynningartímabilinu og sem er fyrir tíma og dagsetningu skráningar, þar sem þeirra gæti verið krafist hvenær sem er til staðfestingar og til að vinningshafi fái vinninginn. Ef þátttakandi getur ekki lagt fram kvittun fyrir kaupum á öllum innsendum færslum og kynningaraðili óskar eftir því, hefur sá þátttakandi ekki lengur þátttökurétt í kynningunni og allar síðari skráningar verða ógildar.
11. Vinningar á aðal kynningartímabili: Á aðal kynningartímabilinu er hægt að vinna alls 499 verðlaun.
a. 1. röð verðlaun: Fjórir (4) sigurvegarar vinna ferð til New York borgar, fyrir vinningshafa og gest að verðmæti um það bil 3.497 EUR/39.690 NOK/26.000 DKK (nákvæmt verðmæti ákvarðað þegar verðlaunin eru afhent). Innihald ferðar:
i. 4 nátta gisting á 4* hóteli í New York borg, Bandaríkjunum;
ii. Flug báðar leiðir á almennu farrými, frá næsta alþjóðaflugvelli sigurvegarans til alþjóðaflugvallarins [JFK / Newark];
iii. Akstur báðar leiðir frá hóteli til flugvallar;
iv. 1 x þátttaka í Cluedo Experience.
b. 2. röð verðlaun: 495 vinningshafar, fimm (5) á dag, vinna hver eitt (1) Cluedo borðspil hvert að andvirði 29 EUR/329 NOK/216 DKK („Dagleg verðlaun“).
12. Verðlaun fyrir framlengt kynningartímabil: Hægt er að vinna ein (1) verðlaun innan framlengds kynningartímabils. Verðlaunin eru eitt (1) Cluedo borðspil að verðmæti 29 EUR/ 329 NOK / 216 DKK.
13. Önnur skilyrði fyrir 1.verðlaun:
a. 1. verðlaun verða veitt af Cloud 9 („Umboðsaðili fyrir afhendingu verðlauna“).
b. Hver verðlaun gilda fyrir vinningshafa og einn gest.
c. Cluedo upplifunin er háð opnunardögum staðarins og verður tilkynnt vinningshöfum um leið og vinningur er afhentur. Að öðrum kosti getur kynningaraðili, að eigin ákvörðun, boðið upp á aðra upplifun.
d. Vinningshafi eða gestur hans verður að vera eldri en 21 árs til að geta skráð sig inn á hótelið.
e. Boðið verður upp á flug báðar leiðir frá þeim alþjóðaflugvelli sem er næst vinningshöfum í búsetulandi þeirra. Val á alþjóðaflugvelli brottfararflugs er háð ákvörðun kynningaraðila og afgreiðsluaðila verðlauna.
f. Ef gestur vinningshafa er undir lögaldri, þarf hann að vera í fylgd með fullorðnum og með frumrit af undirrituðu samþykkisbréfi frá forráðamanni sínum.
g. Vinninginn þarf að nota fyrir 30. nóvember 2025 að undanskildum tímabilinu 22. desember 2024 – 1. janúar 2025 og 1. júlí 2025 – 31. ágúst 2025, háð framboði. Gefa þarf a.m.k. 6 vikna fyrirvara á vali á dagsetningu dvalar.
h. Ferðatilhögun, þar með talið kostnaður vegna almenningssamgangna, eldsneytis eða bílastæða, til og frá heimili vinningshafa eða heimilis gesta og brottfararflugvallar, er ekki hluti af vinningnum og er á ábyrgð vinningshafa og ferðafélaga hans. Til að taka af allan vafa, þá felur vinningurinn ekki í sér mat, drykki, minjagripi, þjónustugjald, bílastæðagjald, eða einhvern annan persónulegan kostnað sem ekki er ótvírætt settur fram í þessum skilmálum og skilyrðum og hvorki kynningaraðilinn né neinn veitandi einhvers hluta vinningsins er ábyrgur fyrir slíkum kostnaði. Akstur milli heimilis vinningshafa og flugvallar er ekki innifalinn.
i. Hugsanlegir skilmálar sem tengjast Cluedo Experience gætu átt við og verða þeir kynntir við þátttöku.
j. Vinningshafar og gestir þeirra verða að hlíta öllum skilmálum og skilyrðum sem hluta af vinningnum sem tilkynnt verður um í samskiptum við vinningshafa. Á viðburðinum eða vettvangi er óleyfilegt að: vera undir áhrifum áfengis, undir áhrifum lyfja, undir lögaldri, sýna dónaskap, ógnandi hegðun, tjá eða hvetja til kynþáttaníðs, söngla, nota móðgandi orðbragð, gera dónalegar bendingar, fleygja hlutum, hegða sér andfélagslega, vera með leysigeislapenna, koma með dýr (leiðsöguhundar undanskildir), bera á sér vopn hvers konar eða ólögleg efni, vera með kerti, klifra í mannvirkjum, vera með óhóflegan hávaða, bjóða hluti til sölu, vinna skemmdarverk á vettvangi, eða reykja. Brot á þessum á þessum skilmálum getur leitt til þess að vinningshafi og/eða gestur hans/hennar þurfi að yfirgefa viðburðinn/staðinn.
k. Allir flugskattar, aukagjöld og ein taska í innskráðan farangur á hvern farþega er innifalið.
l. Verðlaunin verða tilkynnt með tölvupósti á milli afgreiðsluaðila verðlauna, kynningaraðila og vinningshafa. Afgreiðsluaðili vinninga mun gera sitt besta til að veita vinningshöfum allar upplýsingar um vinninga eins fljótt og auðið er. Kynningaraðilinn og afgreiðsluaðili vinninga munu taka endanlega ákvörðun um öll atriði og þætti á skipulagi verðlauna. Þegar upplýsingar um vinninginn, þ.m.t. dagsetningar og staðsetningar hafa verið staðfestar, eru breytingar ekki leyfðar.
m. Vinningshafi og gestur hans bera ábyrgð á kostnaði við allar viðeigandi tryggingar (þar með taldar sjúkra- og ferðatryggingar, tryggingar fyrir þjófnaði, tjóni og eignatjóni) sem kann að vera krafist eða er skynsamlegt að taka.
n. Þegar miðar hafa verið gefnir út gilda þeir aðeins fyrir flug, dagsetningar og tíma sem gefið er upp. Engir aðrir kostir eru í boði. Nafnabreytingar á flugmiðum sem búið er að staðfesta eru ekki leyfilegar.
o. Vinningshafi og gestur hans verða að hlíta og lúta birtum skilmálum flugfélagsins.
p. Vinningshafi á ekki rétt á neinum bótum og á enga kröfu á skipuleggjanda, úrvinnsluaðila eða kynningaraðila ef ferð eða öðrum viðburðum sem eru hluti af vinningnum, er seinkað, frestað, breytt eða aflýst.
q. Aðgangskort að setustofu og uppfærslur á flugmiða eru ekki leyfðar. Ekki er hægt að nota flug í samspili við vildarkerfi kynningaraðila/eða önnur vildarkerfi, neinn annan afslátt, afsláttarmiða eða úttektarmiða, kynningar eða sértilboð. Ekki er hægt að safna ferðapunktum á flugmiðum eða í neinu vildarkerfi.
r. Flugsæti eru háð framboði.
s. Vegabréf vinningshafa og gesta þurfa að gilda í að minnsta kosti 6 mánuði frá degi ferðar; allar nauðsynlegar vegabréfsáritanir eða ferðatryggingar eru á ábyrgð vinningshafa og gests hans. Ef sigurvegarinn eða gestur hans geta ekki ferðast vegna vegabréfsáritunar eða annarra persónulegra aðstæðna verða ekki aðrir miðar gefnir út og engar bætur eða önnur verðlaun veitt.
t. Vinningshafi og gestur verða að ferðast saman í öllum tilfellum, á sömu dögum og tíma, fara í sömu ferðina og deila sama herbergi í öllum gistirýmum. Vinningshafi afsalar sér vinningnum að öllu leyti ef vinningshafi kemst ekki í fyrirhugaða bókun og kynningaraðili og allir veitendur verðlauna hafa engar frekari skuldbindingar við vinningshafa.
u. Vinningshafi ber ábyrgð á hegðun sjálfs síns og gesta við viðtöku vinnings. Kynningaraðili áskilur sér rétt til að útiloka vinningshafa og/eða gesti þeirra frá þátttöku í öllum þáttum vinningsins, ef einhver aðili fer ekki eftir fyrirmælum kynningaraðila eða fyrirtækja sem tengjast vinningnum, eða ef vinningshafi og/eða gestur hans hegðar sér á einhvern hátt sem er hættulegur þeim sjálfum eða öðrum, eða er, að mati kynningaraðila, andfélagslegur á nokkurn hátt eða veldur öðrum truflun eða ónæðis. Brot á þessum skilmálum og skilyrðum kann að leiða til þess að vinningur verði dreginn til baka.
v. Gisting miðast við að tveir (2) einstaklingar deili hjóna- eða tveggja manna herbergi í 4 nætur. Kynningaraðili velur gistingu að eigin ákvörðun. Morgunverður er ekki innifalinn.
w. Vinningshafi ber einn ábyrgð á öllum auka kostnaði sem stofnað er til á hótelinu meðan á dvöl hans stendur, þar með talið, án takmarkana, kostnaði við máltíðir, drykki, auka nætur og þjónustu ásamt tengdum sköttum.
x. Kredit- eða debetkorts er krafist er til innritunar á herbergið, þarf að vera í gildi og það notað til að tryggja allan tilfallandi kostnað eins og símtöl af herberginu eða þjónustu.
y. Kynningaraðili greiðir kostnað við staðlað herbergi auk herbergisskatta.
z. Vinningar verða að vera í samræmi við viðmiðunarreglur stjórnvalda og reglur um COVID-19 og takmarkanir sem eru í gildi þegar ferðast er, fyrirkomulag og aukakostnað vegna COVID-19 prófs, gistirými í sóttkví eða annað sem kann að vera krafist er alfarið á ábyrgð vinningshafa og gesta hans/hennar.
aa. Vinningnum er fyrirgert ef:
i. Vinningshafi hefur ekki fengið öll viðeigandi ferðaskilríki fyrir þann dag sem kynningaraðili tilgreinir;
ii. Vinningshafi á í vandræðum með innflytjendamál sem koma í veg fyrir að hann geti ferðast til landsins eða frá landinu, eða ferðast innan fyrirfram bókaðs tímabils; eða
iii. Vinningshafi hefur einhverjar læknisfræðilegar, lagalegar eða aðrar ástæður sem gætu komið í veg fyrir að hann þiggi og nýti verðlaunin.
bb. Það er á ábyrgð vinningshafa að gefa upp réttar, uppfærðar upplýsingar þegar hann skráir sig í kynninguna og/eða staðfestir viðtöku vinningsins til að hægt sé að vinna úr verðlaununum. Kynningaraðili ber ekki ábyrgð á því ef vinningshafi hefur ekki gefið upp nákvæmar upplýsingar sem hafa áhrif á móttöku verðlauna eða afhendingu vinnings.
cc. Það er á ábyrgð vinningshafa og allra gesta að skoða allar ferðaráðleggingar sem stjórnvöld gefa út, og ákvarða hvort þeir vilji taka áhættu á að ferðast á áfangastaðinn. Kynningaraðili ber ekki ábyrgð á tapi eða tjóni sem sigurvegari eða gestur hans verður fyrir vegna vanrækslu þeirra á að fylgja ferðaráðleggingum sem stjórnvöld hafa gefið út. Vinningshafi og gestur hans verða að fara að og bera ábyrgð á að kynna sér allar upplýsingar varðandi ráðlagðar bólusetningar og fá þær bólusetningar sem krafist er og kynna sér þær heilbrigðisreglur sem eru í gildi á áfangastað.
dd. Allir þættir vinnings skulu vera hluti af sömu ferð.
ee. Vinningshafi skal upplýsa kynningaraðila ef þörf er á hjólastólaaðgengi eða öðrum sérþörfum á aðgengi.
14. Val á vinningshafa á aðal kynningartímabili:
a. Val á vinningshafa í 1. sæti: Þeir fjórir (4) þátttakendur sem ljúka áskoruninni á stystum tíma á aðal kynningartímabilinu verða taldir vinningshafar til bráðabirgða á fyrsta stigi aðal kynningartímabils („Vinningshafar aðal kynningartímabils til bráðabirgða“).
b. Val á vinningshafa í 2. sæti: Þeir fimm (5) þátttakendur sem ljúka áskoruninni á skemmstum tíma á hverjum degi á aðal kynningartímabilinu (alls 495 vinningshafar) verða taldir vinningshafar til bráðabirgða aðal kynningartímabilsins og hljóta 2. verðlaun. („Daglegir vinningshafar til bráðabirgða“).
15. Val á vinningshafa framlengds kynningartímabils: Sá þátttakandi sem lýkur áskoruninni á stystum tíma á framlengdu kynningartímabili telst endanlegur vinningshafi („Endanlegur vinningshafi til bráðabirgða“).
16. Ef jafntefli verður á milli tveggja eða fleiri þátttakenda sem hugsanlega hafa unnið vegna jafns lokatíma, á aðal kynningartímabili 1. vinninga, á hvaða degi sem er innan aðal kynningartímabils fyrir dagleg verðlaun eða eftir framlengt kynningartímabil, verður haft samband við viðkomandi þátttakendur og þeir beðnir um að svara eftirfarandi spurningu: Ef þú værir Cluedo persóna, hver værir þú og hvers vegna?
17. Skráningar sem berast samkvæmt ákvæði 16 hér að ofan verða dæmdar af óháðum þriðja aðila út frá:
a. Frumleika (af 10 stigum);
b. Sköpunargáfu (af 10 stigum); og
c. Kímnigáfu (af 10 stigum).
18. Tilkynning til vinningshafa:
a. Aðalkynning: Haft verður samband við vinningshafa aðal kynningartímabils til bráðabirgða og daglegan vinningshafa til bráðabirgða (ákvarðað með því að klára áskorunina á stysta tímanum daglega eða allt aðal kynningartímabilið, eða svara spurningunni í grein 16) með tölvupósti á netfangið sem skráð er á Poptopia reikninginn þeirra innan 28 daga frá því að áskoruninni var lokið á vef Pringles eða með því að svara spurningunni í 16. grein og gæti verið beðinn um að leggja fram sönnunargögn um auðkenni og gjaldgengi. Ef vinningshafi aðal kynningartímabils til bráðabirgða eða daglegur vinningshafi til bráðabirgða svarar ekki fyrstu skilaboðum innan 14 daga eða fellur úr keppni vegna brota á þessum skilmálum áskilur kynningaraðili sér rétt til að veita verðlaunin til næst hraðasta þátttakanda úr aðal kynningarkeppni eða frá tilheyrandi degi.
b. Framlengt kynningartímabil: Endanlegur vinningshafi til bráðabirgða fær tilkynningu með tölvupósti á netfangið sem skráð er á Poptopia reikninginn hans innan 28 daga frá því að framlengdu kynningartímabili lýkur og gæti verið beðinn um að leggja fram sönnunargögn um auðkenni og gjaldgengi. Ef endanlegur vinningshafi til bráðabirgða svarar ekki fyrstu skilaboðum innan 14 daga frá móttöku eða fellur úr keppni vegna brota á þessum skilmálum og skilyrðum áskilur kynningaraðili sér rétt til að veita verðlaunin til næst hraðasta þátttakanda frá framlengdu kynningartímabili.
19. Eftir lok framlengds kynningartímabils, ef vinningum var hafnað, voru ekki afhentir eða þeim skilað til sendanda á einhverju kynningartímabili, eða ef vinningshafi aðal kynningartímabils til bráðabirgða, daglegur vinningshafi til bráðabirgða eða endanlegur vinningshafi til bráðabirgða (kallast saman „Vinningshafi til bráðabirgða“) er dæmdur úr leik vegna brota á skilmálum þessum, áskilur kynningaraðili sér rétt til að afhenda vinningana til næst hröðustu keppenda sem tókst að ljúka áskoruninni á aðal kynningartímabilinu, viðkomandi degi eða framlengda kynningartímabilinu þegar vinningurinn var upphaflega veittur. Þar sem það veltur algjörlega á því hvað unnið er í kynningunni, er fjöldi verðlauna sem hægt er að veita með þessari leið, óþekktur. Allir sigurvegarar með þessari leið munu fá tilkynningu í tölvupósti innan 28 virkra daga frá lokum framlengds kynningartímabils.
20. Viðtaka og afhending vinnings: Vinningshafar til bráðabirgða gætu verið beðnir um að leggja fram sönnunargögn um auðkenni eða gjaldgengi. Þegar bráðabirgðavinningshafi hefur lagt fram sönnunargögn um auðkenni sitt og gjaldgengi ef þess er óskað, ætti hann að vera vakandi fyrir tölvupósti sem staðfestir að hann sé sigurvegari ásamt frekari upplýsingum um vinninginn. Allt að 10 dagar geta liðið þar til tilkynning um undirbúning afgreiðslu vinninga berst á netfangið sem veitt var þegar Poptopia aðgangur var skráður.
21. Ef svo ólíklega vill til að tölvupóstur með frekari upplýsingum um vinninginn berist ekki innan 10 daga frá tilkynningu vinningshafa hafa vinningshafar 28 daga til viðbótar til að tilkynna það til kynningaraðilans, með því að fara á síðuna Hafa samband á Pringles.com. Ef vinningshafi gerir það ekki áskilur kynningaraðili sér rétt til að gefa vinninginn ekki út aftur eða takmarka verðmæti þeirra að eigin ákvörðun.
22. Stjórnun: Kynningaraðili mun hafna skráningum á grundvelli 16. ákvæðis sem, að sanngjörnu mati kynningaraðila:
a. Innihalda efni sem er særandi eða sýna vörumerki kynningaraðila, orðspor hans eða velvild í neikvæðu ljósi;
b. rægja, móðga eða eru með rangfærslur um annað fólk eða önnur fyrirtæki, þar með talið, en ekki takmarkað við, kynningaraðila (þar á meðal samstarfsaðila hans); eða svör sem lýsa ákveðinni pólitískri sýn.
23. Það er á ábyrgð vinningshafa að gefa upp réttar persónuupplýsingar á Poptopia aðgangi sínum til tryggja sér vinninginn sinn. Kynningaraðili ber enga ábyrgð á því ef ekki er hægt að afhenda vinninginn vegna rangra upplýsinga. Ekki er hægt að uppfæra netfang eða póstfang vinningshafa eftir skráningu.
24. Vinningshafar þurfa ekki að stofna til neins kostnaðar við að krefjast verðlauna eða samsvarandi ávinnings. Neytandi kann að stofna til kostnaðar við að taka þátt í kynningu. Vinningshafar þurfa ekki að stofna til kostnaðar meðan á ráðstöfunum kynningaraðila stendur til að vinningshafi fái vinninginn sinn.
25. Kynningaraðili óskar mögulega eftir því að vinningshafinn taki þátt í hæfilegri kynningarstarfsemi í tengslum við kynninguna, þ.m.t. notkun á nafni vinningshafa, rödd, borg/bæjarfélagi vinningshafa, mynd af vinningshafa eða myndband, og/eða önnur sýnileg einkenni í auglýsinga- og/eða viðskiptatilgangi og/eða í öðrum tilgangi í hvaða miðli eða sniði sem er nú eða hér eftir án frekari þóknunar (fjárhagslegrar eða annarrar). Þátttaka heyrir undir ákvörðunarrétt vinningshafa og er ekki skilyrði þess að taka við verðlaununum.
26. Kynningaraðili leitast við að framkvæma kynningarherferðir sínar með sanngjörnum og tryggum hætti og koma í veg fyrir misnotkun og svik. Ef þú skráir þátttöku í ósamræmi við þessa skilmála munu þátttaka þín (og öll dulnefni sem tengjast þér) falla úr keppni, vinningar sem hafa verið afhendir fyrnast, og kynningaraðili áskilur sér rétt til að banna þér þátttöku í framtíðar kynningum í að minnsta kosti sex mánuði. Vegna þessa áskilur kynningaraðili sér rétt til hvenær sem er að:
a. Sannprófa kjörgengi þátttakenda og/eða tímabundinna vinningshafa með því að óska eftir slíkum upplýsingum sem við teljum nauðsynlegar í þessum tilgangi. Þátttakanda getur verið synjað um þátttöku eða vinning þar til sannprófun er lokið með fullnægjandi hætti.
b. Fella úr keppni skráningar þátttöku sem ekki eru gerðar beint af einstaklingnum sem er skráður þátttakandi í kynningunni.
c. Fella úr keppni skráningar þátttöku sem gerðar voru með ónafngreindri tölvupóstþjónustu svo sem, án takmörkunar við, GuerillaMail, Dispostable eða Mailinator.
d. Fella úr keppni magnskráningar þátttöku frá einstaklingum, fyrirtækjum, neytendasamtökum eða þriðju aðilum, skráningar sem ekki eru fullkláraðar, og skráningar skráðar með notkun fjölvaskipana (e. „macros“) eða annarri sjálfvirkni.
e. Fella úr keppni skráningar sem eru yfir leyfðu hámarki skráninga, eða skráningar með notkun tækni á borð við „skriftumál“ (e. „script“), þvingun (e. „brute force“), dulkóðun auðkennis með því að hagræða IP vistfangi, notkun dulnefna eða auðkenna annarra, eða annarrar tækni.
f. Fella úr keppni skráningar þátttöku sem á einhvern annan hátt uppfylla ekki kröfur þessara skilmála.
27. Þátttakendum er skylt að gefa upp persónuupplýsingar með eigin nafni. Kynningaraðili áskilur sér rétt til að taka þátttakanda úr keppni sem notar mörg nöfn eða netföng og krefjast þess að hann skili vinningum sem hann hefur unnið.
28. Vinninga er ekki hægt að færa yfir á annan aðila eða skipta við annan aðila né skipta út fyrir peninga eða aðra þóknun. Ef svo ólíklega vill til að einhver hluti vinninga sé ekki fáanlegur áskilur kynningaraðili sér rétt til að veita að eigin ákvörðun aðra vinninga í staðinn, af sama eða hærra verðmæti.
29. Vinningshafi ber ábyrgð á að greiða alla viðkomandi skatta sem þarf til að fá vinninginn afhentan.
30. Ef ekki er hægt að framkvæma kynningarherferðina samkvæmt áætlun vegna ástæðna sem tengjast, en takmarkast ekki við, óheimila breytingu, óheimila íhlutun, svik, óheiðarleika, tæknilega bilun, eða aðrar ástæðum sem kynningaraðili getur ekki haft áhrif á, sem spilla eða hafa áhrif á stjórnun, öryggi, sanngirni, réttmæti eða tilhlýðilega framgöngu þessarar kynningarherferðar, áskilur kynningaraðili sér rétt til að víkja úr keppni þátttakendum sem breyta með óheimilum hætti skráningu eða fylgja ekki þessum skilmálum, eða gera skráningar sem í hlut eiga ógildar og/eða afturkalla, breyta eða fresta kynningunni.
31. Engin ábyrgð er tekin á skráningum sem glatast, seinkar, spillast, skemmast, vísað rangt eða voru ófullnægjandi, eða sem ekki bárust vegna tæknilegra eða flutningstengdra ástæðna eða annarra ástæðna. Sönnun sendingar gildir ekki sem sönnun móttöku. Kynningaraðili ábyrgist ekki áframhaldandi eða tryggt aðgengi að kynningarsíðunni.
32. Kynningaraðili, umboðsaðili um afhendingu verðlauna og önnur tengd umboð og fyrirtæki eru ekki ábyrg fyrir neinu tjóni (þar með talið, án takmarkana, óbeinu, sérstöku eða afleiddu tapi eða tapi á hagnaði), kostnaði eða tjóni sem hljótast af eða koma upp (hvort sem það stafar af vanrækslu einhvers eða ekki) í tengslum við þessa kynningu eða við að taka við eða nota verðlaun, nema þá ábyrgð sem ekki er hægt að útiloka samkvæmt lögum. Ekkert útilokar ábyrgð kynningaraðila vegna dauða eða líkamstjóns sem hlýst af vanrækslu hans.
33. Kynningaraðili ber ekki ábyrgð á neinum seinkunum eða vanefndum á skyldum vegna óviðráðanlegra ástæðna sem tengjast, en takmarkast ekki við, óviðráðanlegar aðstæður (e. Acts of God), hnattrænum eða svæðisbundnum farsóttum eða heimsfaröldrum, ofsaveðri, bruna, kjaradeilum, stríði, hryðjuverkum, átökum, pólitískum óróa, óeirðum, borgaralegum uppþotum, drepsóttum, eða öðrum náttúrulegum hamförum eða öðrum aðstæðum kynningaraðila.
34. Við leggjum okkur fram við að vernda friðhelgi þína. Kellogg Europe Trading Limited (Kellogg) og umboðsaðili um afhendingu verðlauna munu aðeins vinna úr upplýsingum þínum í eftirfarandi tilgangi: (1) Til að standa að þessari kynningu samkvæmt skilmálum, og (2) til að hafa samband við þig í tengslum við framtíðar kynningarherferðir og vegna markaðssetninga. Við munum aldrei selja gögn um þig til þriðja aðila, en það getur verið að við sameinum gögn þín við gögn annars staðar frá til að byggja upp nafnlausar forstillingar fyrir markmiðaðar auglýsingar. Unnið verður úr gögnum þínum og þau geymd á netþjónum í Bandaríkjunum. Kellogg hefur gengið úr skugga um að allir vinnsluaðilar sem við notum séu skuldbundnir til að vernda gögn samkvæmt stöðluðum ákvæðum Evrópusambandsins. Við munum geyma gögnin þín eins lengi og samþykki þitt er gilt og þú vilt fá sent markaðsefni. Þú hefur rétt á að nálgast þín gögn, afturkalla samþykki þitt eða að láta eyða gögnunum. Þú hefur einnig rétt á því að hafa samband við eftirlitsaðila gagnaverndar. Ef þú hefur frekari spurningar um hvernig við notum gögnin, skaltu skoða Persónuverndarstefnu okkar. Þú getur einnig haft samband við okkur á DataPrivacyOfficer@kellogg.com. Farið verður með allar upplýsingar sem safnað er um þátttakendur í þessari kynningu sem trúnaðarmál í samræmi við stefnu kynningaraðila um friðhelgi sen er að finna á:
a. Danmörk: https://www.pringles.com/dk/privacy-policy.html,
b. Finnland: https://www.pringles.com/fi/privacy-policy.html,
c. Noregur: https://www.pringles.com/no/privacy-policy.html,
d. Svíþjóð: https://www.pringles.com/se/privacy-policy.html.
35. Allar persónuupplýsingar sem vinningshafi leggur fram til umboðsaðila um afhendingu verðlauna, verða meðhöndlaðar í samræmi við persónuverndarstefnu hans, sem er aðgengileg á: www.uponcloudnine.co.uk/privacy.html.
36. Ef þess er krafist samkvæmt lögum eða eigin eftirliti sem gilda um rekstur kynningarinnar gæti kynningaraðili þurft að deila einhverjum persónuupplýsingum sigurvegara með yfirvöldum, aðeins að því marki sem lög kveða á um. Þessar upplýsingar geta verið nafn sigurvegara, eftirnafn, búseta eða aðrar persónuupplýsingar sem kynningaraðili þarf að deila.
37. Ef einhver hluti þessara skilmála og skilyrða er með lögum talinn ógildur, ólöglegur, eða honum ekki unnt að framfylgja, mun það ekki hafa áhrif á aðra hluta skilmálanna og eru þeir áfram í gildi.
38. Með skráningu hefur þú samþykkt að binda þig þessum skilmálum og skilyrðum.
39. Ef ósamræmi kemur upp á milli þessara skilmála og skilmála í einhverju öðru efni kynningarherferðar munu þessir skilmálar gilda.
40. Skilmálar þessir falla undir lög viðkomandi lands fyrir hvern þátttakanda og þátttakendur lúta eingöngu lögsögu dómstóla viðkomandi lands sem þeir búa í.
Kynningaraðili: Kellogg Europe Trading Limited, 3 Dublin Airport Central (DAC), Dublin Airport, Dublin (kennitala fyrirtækis 0387390). EKKI SENDA SKRÁNINGAR ÞÁTTTÖKU Á ÞETTA HEIMILISFANG.